Nú er hægt að senda inn umsókn um leigu á orlofshúsum eða íbúðum í útlöndum í sumar. Til að sækja um þarf að fara inn á bókunarvefinn. Hægt er að breyta umsókninni á meðan umsóknarfrestur er ekki liðinn. Það skiptir ekki máli hvenær á umsóknarfrestinum umsóknin kemur inn svo framarlega sem hún kemur inn í síðasta lagi á lokadeginum. Úthlutun fer eftir punktakerfi.
Umsóknarfrestur rennur út sem hér segir:
Útlönd á miðnætti — 15. febrúar 2017, niðurstöður ættu að liggja fyrir um 16. febrúar.
Páskar á miðnætti — 1. mars 2017, niðurstöður ættu að liggja fyrir um 2. mars.
Sumarið innanlands 2016 — 30. mars 2017, niðurstöður ættu að liggja fyrir um 31. mars.
KVH vill minna á að Orlofssjóður BHM er á facebook, þangað eru settar auglýsingar um sumarhús sem losna með stuttum fyrirvara. Einnig er hægt að skrá sig á póstlista á Bókunarvef sjóðsins.