Fréttir frá BHM

  • Eru sérfræðingar reiðubúnir fyrir notkun gervigreindar á vinnustöðum?

    11.09.2024

    BHM heldur ráðstefnu um gervigreind þann 16. september nk. þar sem varpað verður fram hvort sérfræðingar séu reiðubúnir fyrir notkun gervigreindar á vinnustöðum? Ráðstefnan er lokuð og ætluð stjórnendum heildarsamtaka háskólamenntaðra á Norðurlöndum ásamt sérfræðingum á skrifstofum samtakanna. Ráðstefnustjóri og stjórnandi pallborðs með formönnum heildarsamtakanna er Katrín Jakobsdóttir.
  • Háskólamenntun: Fjárfesting í ruslflokki?

    07.09.2024

    Á þessari öld hafa ráðstöfunartekjur fólks með meistaragráðu staðið í stað að teknu tilliti til verðbólgu. Virði meistaragráðu hefur með öðrum orðum ekkert aukist í kaupmætti í rúmlega tuttugu ár. Á sama tíma hefur íslenska hagkerfið vaxið um 45% á hvern íbúa og kaupmáttur launa aukist um 66% heilt yfir. Vandinn er að næstum ekkert af kaupmáttaraukningunni og hagvextinum hefur skilað sér til háskólamenntaðra sem setið hafa eftir í öllum skilningi. Hvati fólks til að sækja sér háskólamenntun fer eðlilega minnkandi við þessar kringumstæður. Af sjónarhóli hagfræðinnar mætti segja að fjárfesting í háskólamenntun sé einfaldlega komin í ruslflokk.
  • Jöfnuður í tekjum en hvað með eignirnar?

    23.08.2024


  • Starf framkvæmdastjóra BHM laust til umsóknar

    23.08.2024

    Starf framkvæmdastjóra er fjölbreytt og krefjandi sem reynir á frumkvæði og úthald í spennandi verkefnum.
  • Starfsþróunarsetur flutt í Borgartún 27

    19.08.2024

    Deilir hæð með tíu aðildarfélögum BHM, ásamt þjónustuskrifstofu SIGL. Styttist í að Viska stéttarfélag flytji í húsið. Skrifstofa BHM er á fyrstu hæð hússins.
  • Sumarlokun skrifstofu og þjónustuvers

    15.07.2024

    Skrifstofa og þjónustuver BHM verða lokuð 22. júlí til 6. ágúst vegna sumarleyfa starfsfólks og verslunarmannahelgar.
  • Ljósmæður skrifa undir fjögurra ára kjarasamning við ríkið

    13.07.2024

    Ljósmæðrafélag Íslands skrifaði undir kjarasamning við ríkið þann 11. júlí síðastliðinn.
  • Viska lagði ríkið fyrir Félagsdómi 

    04.07.2024

    Viska – stéttarfélag, eitt aðildarfélaga BHM, hafði á dögunum betur í dómsmáli fyrir Félagsdómi gegn íslenska ríkinu.
  • Starfshópur um endurskoðun á reglum vegna endurgreiðslu námslána

    04.07.2024

    Nú hafa háskóla,- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra undirritað yfirlýsingu um stofnun starfshóps um endurskoðun á reglum vegna endurgreiðslu námslána í námslánakerfi Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN) og mun BHM eiga aðild að starfshópnum.
  • Viska hefur skrifað undir langtímasamning við ríkið

    01.07.2024

    Viska er fyrst af aðildarfélögum BHM til þess að skrifa undir kjarasamning við ríkið. Um er að ræða nýjan heildarkjarasamning sem gildir afturvirkt frá 1. apríl ef félagsmenn samþykkja samninginn.
  • Reglubreytingar hjá Sjúkrasjóði BHM

    28.06.2024

    Stjórn Sjúkrasjóðs BHM samþykkti á fundi sínum 19. júní sl. reglubreytingar í þremur liðum. Breytingarnar taka gildi 1. júlí nk.
  • Biðla til stjórnvalda að stöðva fyrirhugaða brottvísun

    26.06.2024


  • Óskum eftir ráðgjafa í þjónustuver

    18.06.2024

    Við leitum að hressum og metnaðarfullum einstaklingi í samhent teymi þjónustuvers BHM. Umsóknarfrestur um stöðu ráðgjafa er til og með 25. júní nk.
  • BHM auglýsir eftir hagfræðingi

    11.06.2024

    Við auglýsum starf hagfræðings laust til umsóknar. Umsóknarfrestur er til og með 25. júní nk.
  • Höfuð, herðar, hné og tær

    06.06.2024

    Vinnueftirlitið og VIRK hafa tekið höndum saman og standa að vitundarvakningu undir yfirskriftinni Höfuð, herðar, hné og tær. Þar er fjallað um mikilvægi þess að byggja upp trausta og heilbrigða vinnustaðamenningu sem leggur grunn að öryggi og vellíðan starfsfólks.
Share This