Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga
Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH) er stéttarfélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Félagið sér um að gera kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna, bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði. Það vinnur að bættum kjörum félagsmanna, gætir réttinda þeirra og er óháð starfsvettvangi, vinnuveitanda eða ráðningarformi.
Alls eru greiðandi félagsmenn nú tæplega 2.000. Um 55% starfar á almennum vinnumarkaði en 45% hjá hinu opinbera.
KVH hefur það að markmiði að félagsmenn þess njóti bestu mögulegrar þjónustu og hagsmunagæslu á hverjum tíma. KVH er aðili að Bandalagi háskólamanna.
Aðsetur KVH og BHM er að Borgartúni 6, Reykjavík.
Á skrifstofu KVH er svarað í síma og veitt ráðgjöf er hér segir:
Mánudaga – fimmtudaga 13:00-16:00.
Föstudaga 9:00-12:00.
Fyrir almennar heimsóknir er hægt að bóka ráðgjöf og fjarfundi í síma 595-5140 eða: [email protected]
Efst á baugi
Orlofssjóður BHM – sumarið 2017
Lokafrestur til að senda inn umsókn um orlofshús innanlands sumarið 2017 rennur út á miðnætti 30. mars. Úthlutun fer fram strax daginn eftir eða 31. mars.
Sótt er um hér: Bókunarvefurinn. Það þarf að velja „UMSÓKNIR“ inni á bókunarvefnum til að senda umsókn.
Orlofsblaðið er komið út. Hér er hægt að skoða blaðið
Orlofshús um páska 2017
KVH vill vekja athygli á því að lokafrestur til að senda inn umsókn um orlofshús um páskana rennur út á miðnætti 1. mars. Úthlutun fer fram strax daginn eftir. Sótt er um hér.
Orlofssjóður BHM – orlofshús erlendis
BHM-fræðslan
Hér má nálgast fræðsludagskrá BHM fyrir komandi vorönn.
Dagskráin/skráning er einnig aðgengileg á heimasíðu BHM: http://www.bhm.is/um-bhm/fraedsla/dagskrafraedslu/
Opnað verður fyrir skráningu á námskeiðin kl. 12:00 á hádegi miðvikudaginn 4. janúar nk. Fjöldi þátttakenda er yfirleitt takmarkaður og gildir því reglan fyrstur kemur fyrstur fær.
Félagsaðild
Í boði er meðal annars:
- Fæðingarstyrkir og sjúkradagpeningar
- Starfs- og endurmenntunarstyrkir
- Sumarbústaðir og orlofshúsnæði, innanlands og erlendis
Námsmannaaðild
Námsmenn í viðskiptafræði eða hagfræði á háskólastigi, sem lokið hafa a.m.k. 60 einingum (ECTS) geta sótt um námsmannaaðild að KVH (NKVH). Slík aðild felur m.a. í sér:
- Aðgang að upplýsingum og leiðbeiningum félagsins er snerta störf og kjör á vinnumarkaði
- Aðstoð við gerð ráðningarsamninga
- Aðgang að námskeiðum/málstofum KVH á ári hverju. Efni námskeiðanna eru fjölbreytt og höfða til námsmanna
- Gjöf frá KVH þegar að námi lýkur