HVER GÆTIR ÞINNA HAGSMUNA?

HVER GÆTIR ÞINNA HAGSMUNA?

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH) er stéttarfélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Félagið sér um að gera kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna, bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði.  Það vinnur að bættum kjörum félagsmanna, gætir réttinda þeirra og er óháð starfsvettvangi, vinnuveitanda eða ráðningarformi.

Alls eru greiðandi félagsmenn nú tæplega 2.000. Um 55% starfar á almennum vinnumarkaði en 45% hjá hinu opinbera.

KVH hefur það að markmiði að félagsmenn þess njóti bestu mögulegrar þjónustu og hagsmunagæslu á hverjum tíma. KVH er aðili að Bandalagi háskólamanna.

Aðsetur KVH og BHM er að Borgartúni 6, Reykjavík.

Á skrifstofu KVH er svarað í síma og veitt ráðgjöf er hér segir:

Mánudaga – fimmtudaga 13:00-16:00.

Föstudaga 9:00-12:00.

Fyrir almennar heimsóknir er hægt að bóka ráðgjöf og fjarfundi í síma 595-5140 eða: [email protected]

Efst á baugi


Aðalfundur KVH

Aðalfundur KVH verður haldinn 18. mars n.k. og verður fundurinn auglýstur nánar síðar. Félagsmenn eru minntir á þau ákvæði 9. gr. laga KVH að tillögum um lagabreytingar skal skila til stjórnar KVH fyrir 15. febrúar n.k., og tilnefningum eða framboðum til embætta skal skila til stjórnar fyrir 1. mars n.k.

Samningaviðræður við SNS

Samningaviðræður Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga við samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga (SNS) hafa staðið yfir síðan í byrjun desember. Hið sama má reyndar segja um viðræður SNS við aðra viðsemjendur innan BHM.

Samninganefnd KVH hefur lagt fram ítarlegar tillögur að nýjum samningi til næstu ára, en viðbrögð SNS eru enn óljós.   Ekki tókst að ljúka viðræðum fyrir jól, þrátt fyrir áherslu KVH þar um.

Næsti samningafundur er boðaður í þessari viku.   Alls starfa tæplega 90 félagsmenn KVH hjá 27 sveitarfélögunum og heyra undir samning þennan.

Orlofssjóður BHM

Nú er hægt að senda inn umsókn um leigu á orlofshúsum eða íbúðum í útlöndum í sumar.  

Til að sækja um þarf að fara inn á bókunarvefinn. Umsóknarformið er undir „umsóknir“, og velja svo „sækja um“. Hægt er að breyta umsókninni  á meðan umsóknarfrestur er ekki liðinn. Það skiptir ekki máli hvenær á umsóknarfrestinum umsóknin kemur inn svo framarlega sem hún kemur inn í síðasta lagi á lokadeginum. Úthlutun fer eftir punktakerfi þar sem kerfið skoðar hverja umsókn fyrir sig. Ef margir sækja um á sama stað á sama tíma fær sá úthlutun sem á flesta punkta. Punktasöfnun fer þannig fram að hver greiðslumánuður  í sjóðinn gefur 4 punkta, árið gefur því 48 punkta.

Umsóknarfrestur rennur út sem hér segir:

Útlönd  á miðnætti       —    15. febrúar  2016, niðurstöður ættu að liggja fyrir um 16. febrúar.

Páskar   á miðnætti*      —   29. febrúar 2016, niðurstöður ættu að liggja fyrir um 27. febrúar.

Sumarið innanlands 2016*  —   31. mars 2016, niðurstöður ættu að liggja fyrir um 1. apríl.

*ATH rafræna umsóknarformið fyrir sumarhúsin um páska og innanlands er einnig komið inn á vefinn

KVH vill minna á að Orlofssjóður BHM er á facebook, þangað eru settar auglýsingar um sumarhús sem losna með stuttum fyrirvara. Einnig er hægt að skrá sig á póstlista á Bókunarvef sjóðsins.

Samningur við Reykjavíkurborg samþykktur

Samkomulag um breytingar og framlenginu kjarasamnings KVH og Reykjavíkurborgar, sem undirritað var 18. desember  var samþykkt í rafrænni atkvæðagreiðslu sem lauk þriðudaginn 22. desember síðast liðinn. Alls 95,8% þeirra sem atkvæði greiddu, samþykktu samninginn.  Hann gildir frá 1. september 2015 til 31. mars 2019.

Forsíða

Félagsaðild

Í boði er meðal annars:

  • Fæðingarstyrkir og sjúkradagpeningar
  • Starfs- og endurmenntunarstyrkir
  • Sumarbústaðir og orlofshúsnæði, innanlands og erlendis

Námsmannaaðild

Námsmenn í viðskiptafræði eða hagfræði á háskólastigi, sem lokið hafa a.m.k. 60 einingum (ECTS) geta sótt um námsmannaaðild að KVH (NKVH). Slík aðild felur m.a. í sér:

  • Aðgang að upplýsingum og leiðbeiningum félagsins er snerta störf og kjör á vinnumarkaði
  • Aðstoð við gerð ráðningarsamninga
  • Aðgang að námskeiðum/málstofum KVH á ári hverju. Efni námskeiðanna eru fjölbreytt og höfða til námsmanna
  • Gjöf frá KVH þegar að námi lýkur