HVER GÆTIR ÞINNA HAGSMUNA?

HVER GÆTIR ÞINNA HAGSMUNA?

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH) er stéttarfélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Félagið sér um að gera kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna, bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði.  Það vinnur að bættum kjörum félagsmanna, gætir réttinda þeirra og er óháð starfsvettvangi, vinnuveitanda eða ráðningarformi.

Alls eru greiðandi félagsmenn nú tæplega 2.000. Um 55% starfar á almennum vinnumarkaði en 45% hjá hinu opinbera.

KVH hefur það að markmiði að félagsmenn þess njóti bestu mögulegrar þjónustu og hagsmunagæslu á hverjum tíma. KVH er aðili að Bandalagi háskólamanna.

Aðsetur KVH og BHM er að Borgartúni 6, Reykjavík.

Á skrifstofu KVH er svarað í síma og veitt ráðgjöf er hér segir:

Mánudaga – fimmtudaga 13:00-16:00.

Föstudaga 9:00-12:00.

Fyrir almennar heimsóknir er hægt að bóka ráðgjöf og fjarfundi í síma 595-5140 eða: [email protected]

Efst á baugi


Námsmannaaðild KVH

KVH hefur gert samstarfssamninga við fimm námsmannafélög viðskipta- og hagfræðinga.  Þ.e. við Háskóla Íslands (Mágus og Ökonomia), við Háskólann í Reykjavík (Markaðsráð), við Háskólann á Akureyri (Reki) og við Háskólann á Bifröst (Merkúr).

Námsmenn í viðskiptafræði eða hagfræði á háskólastigi, sem lokið hafa a.m.k. 60 einingum (ECTS) geta sótt um námsmannaaðild að KVH. Slík aðild felur m.a. í sér aðgang að leiðbeiningum félagsins er snerta störf og launakjör. Þá mun KVH bjóða námsmönnum, sem eiga aðild að félaginu, námskeið til undirbúnings því að sækja um störf og hefja fulla þátttöku á vinnumarkaði, þegar námi lýkur.

Námsmenn greiða ekki gjöld til félagsins meðan þeir eru í námi nema þeir þiggi laun á tímabilinu og séu jafnframt í störfum þar sem menntun þeirra nýtist. Námsmannaaðild getur varað allt að fjórum árum.

Fréttabréf KVH: niðurstöður kjarakönnunar KVH 2014

Nú í september kom út 5. tbl. Fréttabréfs KVH og var það sent á netföng allra félagsmanna. Efnisatriði þess voru niðurstöður úr kjarakönnun KVH/BHM sem framkvæmd var í mars-apríl síðast liðnum. Gerð var grein fyrir helstu niðurstöðum og tölum, jafnt sem bent á ýmsa tölfræði. Hafi einhverjir félagsmenn ekki fengið Fréttabréfið sent á rétt netfang, eru þeir beðnir að hafa samband við skrifstofu KVH eða senda ábendingu á [email protected]

Sjóðfélagar í Styrktarsjóði eða Sjúkrasjóði BHM athugið!

Umsóknir og gögn sem miðast við almanaksárið 2014 þurfa að berast í síðasta lagi 9. desember næstkomandi. Umsóknum og fylgigögnum er skilað í gegnum Mínar síður BHM. Sama gildir um gögn vegna umsókna sem þegar hafa borist.

Styrkumsóknir eru afgreiddar í hverjum mánuði. Umsóknir og fullnægjandi gögn sem berast í síðasta lagi 9. eru greiddar út 24.-26. dag sama mánaðar.

 

Nálgast má úthlutunarreglur á vefsvæði sjóðanna.

 

Nánari upplýsingar gefa fulltrúar sjóðanna:

Ingunn Þorsteinsdóttir  vegna Styrktarsjóðs (opinberir starfsmenn): Sími 595-5111

Gissur Kolbeinsson vegna Sjúkrasjóðs (starfsmenn á almennum markaði):  Sími 595-5120

BHM fræðslan – dagskrá haustið 2014

Hér má sjá þau fjölmörgu erindi/fyrirlestra sem í boði verða í haust í BHM fræðslunni.

Öll þau námskeið og erindi sem í boði eru, fyrir utan þau sem eru sérstaklega ætluð stjórnendum og/eða trúnaðarmönnum, eru opin fyrir alla félagsmenn BHM þeim að kostnaðarlausu.

Hvetjum við félagsmenn KVH eindregið til að kynna sér vel og nýta það sem er í boði.

Forsíða

Félagsaðild

Í boði er meðal annars:

  • Fæðingarstyrkir og sjúkradagpeningar
  • Starfs- og endurmenntunarstyrkir
  • Sumarbústaðir og orlofshúsnæði, innanlands og erlendis

Námsmannaaðild

Námsmenn í viðskiptafræði eða hagfræði á háskólastigi, sem lokið hafa a.m.k. 60 einingum (ECTS) geta sótt um námsmannaaðild að KVH (NKVH). Slík aðild felur m.a. í sér:

  • Aðgang að upplýsingum og leiðbeiningum félagsins er snerta störf og kjör á vinnumarkaði
  • Aðstoð við gerð ráðningarsamninga
  • Aðgang að námskeiðum/málstofum KVH á ári hverju. Efni námskeiðanna eru fjölbreytt og höfða til námsmanna
  • Gjöf frá KVH þegar að námi lýkur