HVER GÆTIR ÞINNA HAGSMUNA?

HVER GÆTIR ÞINNA HAGSMUNA?

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH) er stéttarfélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Félagið sér um að gera kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna, bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði.  Það vinnur að bættum kjörum félagsmanna, gætir réttinda þeirra og er óháð starfsvettvangi, vinnuveitanda eða ráðningarformi.

Alls eru greiðandi félagsmenn nú tæplega 2.000. Um 55% starfar á almennum vinnumarkaði en 45% hjá hinu opinbera.

KVH hefur það að markmiði að félagsmenn þess njóti bestu mögulegrar þjónustu og hagsmunagæslu á hverjum tíma. KVH er aðili að Bandalagi háskólamanna.

Aðsetur KVH og BHM er að Borgartúni 6, Reykjavík.

Á skrifstofu KVH er svarað í síma og veitt ráðgjöf er hér segir:

Mánudaga – fimmtudaga 13:00-16:00.

Föstudaga 9:00-12:00.

Fyrir almennar heimsóknir er hægt að bóka ráðgjöf og fjarfundi í síma 595-5140 eða: [email protected]

Efst á baugi


Kjarasamningur samþykktur við sveitarfélögin

Kjarasamningur KVH við Samband íslenskra sveitarfélaga, sem undirritaður var þ. 30. mars sl., var samþykktur í atkvæðagreiðslu þeirra félagamanna sem undir hann heyra og lauk í síðustu viku.

Svarhlutfall var tæp 70%.   Þeir sem sögðu já voru 83,7%,  nei sögðu 14,3%, en 2% skiluðu auðu.  Gildistími þessa nýja samnings er frá 1. mars 2014 til 31. ágúst 2015.  Meginbreytingin felst í upptöku nýrrar launatöflu. Desemberuppbót á árinu 2014  verður kr. 87.500, orlofsuppbót árið 2014 verður kr. 41.200 og árið 2015 kr. 42.000.

Á samningstímanum verða skoðaðir möguleikar Sambandsins til þátttöku í Starfsþróunarsetri háskólamanna, auk þess sem aðilar munu vinna að endurskoðun starfaskilgreininga og launaröðun. Á niðurstaða að liggja fyrir eigi síðar en 1. mars 2015 og liggja til grundvallar næstu kjaraviðræðum.    Samningurinn og ný launatafla verða birt hér á vefsíðu KVH undir “Kaup og kjör”.

Munum eftir kjarakönnuninni !

Félagsmenn KVH sem enn eiga eftir að svara hinni árlegu kjarakönnun BHM og aðildarfélaganna, eru eindregið hvattir til að taka þátt. Kjarahluti könnunarinnar er nú bæði styttri og einfaldari en í fyrra. Þátttakan er mikilvægt framlag félagsmanna og eftir því sem gagnasöfnun vindur fram aukast möguleikar BHM og aðildarfélaga til þjónustu við félagsmenn.   Það er rannsóknarfyrirtækið Maskína sem sér um framkvæmd könnunarinnar og rétt er að ítreka að farið verður með öll gögn sem trúnaðarupplýsingar. Gott er að hafa skattframtal auk launaseðla fyrir desember 2013 og febrúar 2014 við höndina þegar könnuninni er svarað. Ef spurningar vakna varðandi könnunina má hafa samband í gegnum netfangið [email protected].

Nýr kjarasamningur við sveitarfélögin

Undirritað hefur verið samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi KVH við Samband íslenskra sveitarfélaga, með fyrirvara um samþykki þeirra félagsmanna sem undir samninginn heyra.  Með því er heildarkjarasamningur aðila framlengdur með áorðnum breytingum og nýrri launatöflu frá 1. mars 2014 til 31. ágúst 2015.  Efnisatriði samkomulagsins hafa verið kynnt viðkomandi félagsmönnum í rafpósti, en rafræn atkvæðagreiðsla um hann fer fram dagana 3. apríl til 10. apríl n.k.

Aðalfundur KVH

Aðalfundur Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga verður haldinn fimmtudaginn 27. mars 2014,  kl. 16:00 í Borgartúni 6,  3. hæð, Reykjavík.

 Dagskrá, samkvæmt lögum félagsins:

  • Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári
  • Reikningsskil
  • Skýrslur og tillögur nefnda
  • Tillögur félagsstjórnar
  • Kosning í embætti stjórnar og önnur trúnaðarstörf
  • Kosninga skoðunarmanna
  • Lagabreytingar
  • Ákvörðun félagsgjalda
  • Önnur mál 

     

Lögð verður fram til afgreiðslu  tillaga um lagabreytingar. Tillöguna má sjá á vefsíðu KVH, www.kjarafelagvh.is, undir flipanum: Um KVH / Aðalfundir KVH.

Forsíða

Félagsaðild

Í boði er meðal annars:

  • Fæðingarstyrkir og sjúkradagpeningar
  • Starfs- og endurmenntunarstyrkir
  • Sumarbústaðir og orlofshúsnæði, innanlands og erlendis

Námsmannaaðild

Námsmenn í viðskiptafræði eða hagfræði á háskólastigi, sem lokið hafa a.m.k. 60 einingum (ECTS) geta sótt um námsmannaaðild að KVH (NKVH). Slík aðild felur m.a. í sér:

  • Aðgang að upplýsingum og leiðbeiningum félagsins er snerta störf og kjör á vinnumarkaði
  • Aðstoð við gerð ráðningarsamninga
  • Aðgang að námskeiðum/málstofum KVH á ári hverju. Efni námskeiðanna eru fjölbreytt og höfða til námsmanna
  • Gjöf frá KVH þegar að námi lýkur