HVER GÆTIR ÞINNA HAGSMUNA?

HVER GÆTIR ÞINNA HAGSMUNA?

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH) er stéttarfélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Félagið sér um að gera kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna, bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði.  Það vinnur að bættum kjörum félagsmanna, gætir réttinda þeirra og er óháð starfsvettvangi, vinnuveitanda eða ráðningarformi.

Alls eru greiðandi félagsmenn nú tæplega 2.000. Um 55% starfar á almennum vinnumarkaði en 45% hjá hinu opinbera.

KVH hefur það að markmiði að félagsmenn þess njóti bestu mögulegrar þjónustu og hagsmunagæslu á hverjum tíma. KVH er aðili að Bandalagi háskólamanna.

Aðsetur KVH og BHM er að Borgartúni 6, Reykjavík.

Á skrifstofu KVH er svarað í síma og veitt ráðgjöf er hér segir:

Mánudaga – fimmtudaga 13:00-16:00.

Föstudaga 9:00-12:00.

Fyrir almennar heimsóknir er hægt að bóka ráðgjöf og fjarfundi í síma 595-5140 eða: [email protected]

Efst á baugi


BHM semur um aðgang fyrir félagsmenn að fyrirtækjaskóla Akademias

BHM hefur samið við fræðslufyrirtækið Akademias um aðgang að rafrænum fyrirtækjaskóla þess fyrir félagsmenn aðildarfélaga BHM. Akademias er rafrænn vettvangur fyrir menntun og þjálfun sem býður upp á fjölda lengri og styttri námskeiða og námslína. Listi yfir námskeið í fyrirtækjaskóla eru neðar í þessum tölvupósti.

 

Fjórða iðnbyltingin og óskir félagsmanna

Það hefur verið stefna BHM út frá fjórðu iðnbyltingunni að auka rafræna fræðslu til félagsmanna. Aðstæður vegna heimsfaraldurs flýttu því ferli töluvert en undanfarin tvö ár hefur BHM lagt mikla áherslu á að bjóða upp á vandaða rafræna fræðslu. Lokaður rafrænn vettvangur fyrir námskeið og fyrirlestra var settur upp hér og hefur nýting námskeiða aukist til muna með tilkomu hans.

 

Jafnframt kom skýrt fram í nýlegri þjónustukönnun vegna fræðslu BHM að félagsmenn eru langánægðastir með að hafa aðgang að rafrænum námskeiðum þegar þeim hentar og að geta tekið þátt í námskeiðum í beinni hvar sem þeir eru staddir á landinu. Áhersla hefur því verið lögð á að taka upp námskeið og fyrirlestra og hafa aðgengilega í a.m.k. viku í kjölfarið á lokaða rafræna vettvangnum.

 

Samningur BHM og Akademias

Innifalið í samningnum er aðgangur að 39 rafrænum námskeiðum sem nú eru á vef Akademias auk annarra námskeiða sem bætast við hjá þeim á árinu. BHM fagnar samningnum því námskeiðin eru afar fjölbreytt og spennandi og mæta vel þeim óskum félagsmanna sem fram komu í fyrrnefndri þjónustukönnun. Hér neðar á síðunni er yfirlit yfir námskeiðin sem félagsmönnum standa til boða hjá Akademias. Þess má geta að ekki var samið um aðgang að Microsoft námskeiðum því samskonar námskeið voru aðgengileg öllum félagsmönnum á námskeiðasíðu BHM allt síðasta ár.

 

Hér er annar listi yfir þau námskeið sem eru á fræðsludagskrá BHM á þessu misseri. Á dagskrá eru fjölbreyttir fyrirlestrar og námskeið sem félagsmenn geta tekið þátt í í rauntíma en þó rafrænt vegna aðstæðna. Sem fyrr þá eru flest námskeið og fyrirlestrar tekin upp og aðgengileg í viku í kjölfarið, nema annað sé tekið fram.

 

Skráning í fyrirtækjaskóla Akademias

Þegar þú skráir þig færðu aðgang að öllum námskeiðum fyrirtækjaskóla Akademias út árið 2022. Samið var um pláss í samræmi við þann fjölda sem hefur nýtt sér námskeið á fræðsludagskrá BHM undanfarið ár.

Því er mikilvægt að hafa í huga að við skráningu þá skuldbindur þú þig til að sækja a.m.k. eitt námskeið hjá fyrirtækjaskóla Akademias.

Smelltu hér til þess að skrá þig í fyrirtækjaskóla Akademias með aðgangi í gegnum BHM. Þú færð svo tölvupóst með nánari upplýsingum og kóða til að skrá þig inn.

 

 

Menning og heilbrigði

Í leit að starfi (fyrir fráfarandi starfsfólk )
Heildræn heilsa 1/3 – Andleg með Tolla
Heildræn heilsa 2/3 – Líkamleg með Indíönu
Heildræn heilsa 3/3 – Betri Svefn með Dr. Erlu
Stafræn umbreyting og leiðtogar
Mannauðsstjórnun og breytingar
Tilfinningagreind og hluttekning
Samskipti og samræður

 

Öryggi og eftirlit

Jafnlaunavottun, námskeið fyrir starfsfólk
Innleiðing jafnlaunakerfa fyrir stjórnendur
Persónuvernd (GDPR fyrir fyrirtæki)
Netöryggi með Deliotte. (Fyrir einstaklinga)

 

Leiðtoginn og skipulag

Aðferðafræði Coaching fyrir stjórnendur
Markmiðasetning með Dr. Erlu og Þóru
Tímastjórnun og skipulag funda
Stjórnun lykilverkefna með OKR
Stjórnarhættir minni og meðalstórra fyrirtækja
Stofnun fyrirtækja með KPMG
Verkefnastjórnun með ASANA
Verkefnastjórnun og skipulag
Leiðtoginn og stjórnunarstílar
Stefnumótun og skipulag
Stjórnarhættir og sjálfbærni fyrirtækja
Fjármál og fjármálalæsi
Fjárfestingar og virðisstjórnun

 

Markmiðasetning og sala

Ofurþjónusta með Pétri Jóhanni
Sala á fyrirtækjamarkaði með Pipedrive
Tekjustýring og verðlagning
Almannatengsl, fjölmiðlar og krísustjórnun
Stjórnun markaðsstarfs
Sala og sölutækni
Markaðsstarf í kreppu
Markaðsrannsóknir og greiningar

 

Stafræn markaðssetning

Myndvinnsla með Photoshop
Auglýsingakerfi Facebook og Instagram
Google Ads, auglýsingar á Google og Youtube
Vefverslun með Shopify
Vefsíðugerð með Squarespace
Póstlistar með Mailchimp

Það skiptir máli að viðhalda og bæta við sig þekkingu á vinnumarkaði

BHM stendur fyrir öflugri fræðsludagskrá yfir árið sem allir félagsmenn aðildarfélaga BHM eiga möguleika á að sækja en námskeið eru kynnt á haustin og í janúar á ári hverju.

Hér fyrir neðan er kynnt fræðsludagskrá vormisseris, bæði fyrirlestrar og námskeið sem boðið er upp á í beinni útsendingu á Teams. Vinsamlegast athugið að takmarkað pláss er á sum námskeiðanna, í þeim tilvikum er opnað fyrir skráningar kl. 12:00 á hádegi tveim vikum fyrir áætlaðan námskeiðstíma og það auglýst. Öll námskeiðin verða einnig auglýst sérstaklega þegar nær dregur.

Gott er að athuga að vegna aðstæðna í samfélaginu eru flestir fyrirlestrarnir og námskeiðin í streymi en ætlunin er að hafa önnur í Borgartúni 6, um leið fjöldatakmarkanir verða rýmkaðar svo einhverju nemi. Þegar hægt er þá eru námskeiðin tekin upp og gerð aðgengileg í eina viku eftir að námskeið hefur verið haldið á námskeiðasíðu BHM. 

Fyrirlestrar sérfræðinga BHM

Á lokaðri námskeiðasíðu BHM (hér: námskeiðasíða BHM) eru upptökur af fyrirlestrum sem sérfræðingar BHM hafa haldið fyrir félagsmenn aðildarfélaga um t.d. einelti og áreitni, uppsagnir og áminningar og fleira.

Trúnaðarmannanámskeið

Trúnaðarmannanámskeiðin eru einnig vistuð á lokaðri námskeiðasíðu BHM (hér: námskeiðasíða BHM). Þau eru neðarlega á síðunni og vel merkt. Þar er að finna fjölda myndbanda, hlekkja og upplýsinga sem trúnaðarmenn þurfa að kunna skil á.

Fræðsludagskrá BHM vorið 2022

Rétt til að skrá sig á og sækja fyrirlestra og námskeið BHM hafa allir félagsmenn aðildarfélaga bandalagsins. Hér fyrir neðan getur að líta dagskrá haustsins, smellið á heiti fyrirlestra til þess að lesa meira um þá.

Samningur við fræðslufyrirtæki árið 2022
Líkt og í fyrra verður einnig boðið upp á fjölda námskeið með samningi fræðslufyrirtæki en það verður kynnt sérstaklega á næstu dögum.

Fyrirlestur/námskeið Dagsetning Fyrirlesari Skráningartímabil
Framkoma og ræðumennska – staðnámskeið Óákv. María Ellingsen Verður haldið þegar Covid smitum fækkar
Lífeyrisréttindin þín – Landssamtök lífeyrissj.- TEAMS viðburður 25. jan. 2022 Sólveig Hjaltad. Skrá mig
Jákvæð karlmennska og jafnrétti – TEAMS viðburður 31. jan. 2022 Þorsteinn V. Skrá mig
Ráðstefnustjórn og tækifærisræður – Staðnámsk. Óákv. María Ellingsen  Verður haldið þegar Covid smitum fækkar
Framkoma og ræðumennska – staðnámskeið II Óákv. María Ellingsen Verður haldið þegar Covid smitum fækkar
Seigla/streita – vinur í raun? – TEAMS viðburður 16. feb. 2022 Kristín Sigurðard. Skrá mig
Vinnustofa um hlutverk stjórnenda í breyttu umhverfi – TEAMS viðburður 22. feb. 2022 Eyþór Eðvarðsson Skrá mig
Meðvirkni á vinnustöðum – TEAMS viðburður 8. mar. 2022 Sigríður Indriðad. Skrá mig
Fjarvinna og samskipti – TEAMS viðburður 15. mar. 2022 Ingrid Kuhlman Skrá mig
Að selja vinnu sína og hæfni – TEAMS viðburður 7. apr. 2022 Herdís Pála Skrá mig
Verkefnastjórnun – námskeið með RATA – TEAMS viðburður 26. apr. 2022 Hafdís og Svafa Skrá mig
Hvatning og starfsánægja – fyrir stjórnendur – TEAMS viðburður 18. maí 2022 Ingrid Kuhlman Skrá mig

Nýjar úthlutunarreglur sjúkrasjóðs BHM

Nýjar úthlutunarreglur sjúkrasjóðs BHM tóku gildi nú um áramótin. Mikill viðsnúningur hefur orðið á sjóðnum á síðustu tveimur árum og því ástæða til að hækka styrki.

Helstu reglubreytingar eru:

 

  • Líkamsræktarstyrkur hækkar úr 12.000 kr. upp í 25.000 kr. á 12 mánaða tímabili.
  • Styrkur vegna meðferða á líkama og sál hækkar úr 70% af útlögðum kostnaði að hámarki 50.000 kr. upp í 75.000 kr. (engin prósenta tekin af útlögðum kostnaði) á 12 mánaða tímabili.
  • Styrkur vegna tæknifrjóvgunar breytist með þeim hætti að greiddur er  125.000 kr. hámarksstyrkur á 24 mánaða tímabili (engin prósenta af útlögðum kostnaði).
  • Sjóðfélagar hafa nú 24 mánuði frá fæðingardegi barns til að sækja um fæðingarstyrk í stað 12 mánaða.
  • Einnig er veittur fæðingarstyrkur vegna andvana fæðingar eftir 22. viku meðgöngu og vegna fósturláts eftir 18. viku meðgöngu.
  • Sjóðfélagar hafa 24 mánuði til að sækja um ættleiðingarstyrk í stað 12 mánaða.

Með batnandi stöðu sjóðsins stendur til að hækka styrki og sjúkradagpeninga enn frekar.

Hér má lesa nánar um nýjar úthlutunarreglur.

Opnunartími skrifstofu KVH

Í ljósi hertra sóttvarnarreglna sem gilda til 13. janúar nk. verður þjónusta KVH veitt í gegnum tölvupóst ([email protected]) og síma (595-5140). Lokað verður fyrir almennar heimsóknir en allir fundir verða færðir í fjarfundaform á Teams eða Zoom. Það sama gildir fyrir þjónustuver BHM.

Forsíða

Félagsaðild

Í boði er meðal annars:

  • Fæðingarstyrkir og sjúkradagpeningar
  • Starfs- og endurmenntunarstyrkir
  • Sumarbústaðir og orlofshúsnæði, innanlands og erlendis

Námsmannaaðild

Námsmenn í viðskiptafræði eða hagfræði á háskólastigi, sem lokið hafa a.m.k. 60 einingum (ECTS) geta sótt um námsmannaaðild að KVH (NKVH). Slík aðild felur m.a. í sér:

  • Aðgang að upplýsingum og leiðbeiningum félagsins er snerta störf og kjör á vinnumarkaði
  • Aðstoð við gerð ráðningarsamninga
  • Aðgang að námskeiðum/málstofum KVH á ári hverju. Efni námskeiðanna eru fjölbreytt og höfða til námsmanna
  • Gjöf frá KVH þegar að námi lýkur